Ofurmúsablogg

Bloggað frá Edinborg

27.11.2007 17:57:38 / hronnk

vuhu jei jibbi hurra..............

Buin ad skila ritgerdinni, skiladi henni i dag :D  MSc, here I come...

» 6 hafa sagt sína skoðun

11.09.2007 11:30:25 / hronnk

Ísland í dag

Verð aðeins að monta mig ;) litli bróðir var í sjónvarpinu í gær að kynna tónlistamyndband sem hann var að búa til :D, hægt að sjá viðtalið við hann hér

» 1 hafa sagt sína skoðun

22.08.2007 12:24:17 / hronnk

Toppur


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.08.2007 17:41:04 / hronnk

Myndir af byrjun festivalsins

Setti inn myndir og videó af skrúðgöngunni í byrjun edinborgarhátiðarinnar á:

http://www.hronnzla.myphotoalbum.com/

Glöggir geta séð nýju regnhlífina mína á einhverjum myndum og á videóinu ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.07.2007 12:48:42 / hronnk

Minnisleysi

Er búin að komast að því að ég á við ákveðið minnisleysi að stríða sem kemur harðast niður á buddunni minni, þannig er nefnilega mál með vexti að ég get ómögulega munað að ég var búin að kaupa sumarkjól og held alltaf að mig vanti eitt stykki svoleiðis þegar ég er í búðum ;)

Annars þá er veðrið orðið betra, sól í tvo daga í röð núna......:D


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.07.2007 14:50:12 / hronnk

Mikið að gera í rigningunni

Ég verð nú að segja að mér finnst þetta dáldið óréttlátt, seinasta sumar þegar ég var að vinna úti allt sumarið þá var rigning í allavega 2 mánuði af þremur, en núna þegar ég er í Skotlandi þá rignir og rignir hérna en er fínt veður á Íslandi. Ég var s.s. að enda við að kaupa mér regnhlíf nr 2 þar sem sú fyrsta er ónýt vegna notkunar ;).

Það var rosalega gaman að fá Fífuna í heimsókn, okkur tókst að gera margt þrátt fyrir rigningu og mishepnuð hryðjuverk, ég var einmitt að hlusta á Russell Brand show og þar minntust þeir á að þetta væri nú dáldið týpískt, hollywood style hryðjuverk í Bandaríkunum en svona frekar mannleg hérna. Ég kýs nú þessi Bresku heldur ;), lítil ástæða til að hafa áhyggur af svona bjánum.

Ég er á fullu að vinna í sýnum og kemst því ekkert á klakann í sumar, vona bara að það fari að stytta upp fljótlega hérna, svo ég sjái smá sól.


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.06.2007 08:19:52 / hronnk

Bloggleti

Búin að vera einhver bloggleti í mér uppá síðkastið þannig að ég ætla að prófa svona punktablogg núna til að breyta til:

  • Fór til London að hitta Ragnheiði og Andra, það var rosa gaman
  • Fór með þeim á Avenue Q söngleikinn sem var alveg frábær
  • Lærði og lærði og lærði þegar ég kom heim aftur
  • Fann spennandi pöddur
  • Þórey kom í heimsókn
  • Fór út um allan bæ með Þóreyju
  • Fór til Loch Ness með Þóreyju, en við sáum ekkert skrímsli í þetta skipti, o jæja, better luck next time.

Læt þetta duga að sinni, gaman að heyra í þér hérna Lísa, þarf að finna þig á msn þegar ég er nálægt tölvunni.


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.05.2007 11:05:51 / hronnk

Nýjar myndir

Vííí, nýjar myndir frá parís á:

http://www.hronnzla.myphotoalbum.com/


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.05.2007 09:41:08 / hronnk

Nottingham

Ég verð nú að segja að ferðin til Nottingham var ekki alveg eins spennandi og Parísarferðin, enda sat ég inni mest allan tímann að hlusta á fólk tala um verkefnin sín og reyndar tala sjálf um mitt verkefni. Þó að það hafi alveg verið áhugavert þá stenst það ekki alveg samanburðinn. Varð reyndar fyrir vonbrigðum með prófessorinn frá Cambridge, þó sumir hafi fengið eiginhandaráritun frá honum þá var ég ekki mjög hrifin af skoðunum hans og hvernig hann setti þær fram.

Nottingham er víst glæpahöfuðborg Bretlands og við sáum hversvegna það er, við fórum tvisvar í miðbæinn og það voru gengi af ungum strákum útum allt, allir með hörkulegan svip, mér leist nú ekkert rosalega vel á þetta. Reyndar þá skemmtum við okkur líka vel yfir stelpunum þarna, þær eru greinilega ekki feimnar við að sýna cellulite-ið sitt og þeim virðist ekki verða kalt. Á meðan við vorum í peysum og kápum þá voru þær klæddar eins og þær væru á Ibiza og ekki allar með vöxtinn í það, aðaltískan virðist vera mjöög stuttar stuttbuxur, mjöög háhælaðir skór og pínulítill toppur, því minni því betra og sokkabuxur, hvað er nú það.

Svo er það London um næstu helgi, það ætti að verða gaman, enda bara skemmtiferð víííí. Hlakka til að hitta ykkur Ragnheiður og Andri :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.05.2007 11:52:50 / hronnk

I love Paris in the spring time

Komin aftur frá París og það var æði, við sáum allt sem við gátum mögulega séð á þessum stutta tíma. Ég skrifa endurminningarnar eftir dögum og reyni að halda því einföldu þannig að ef fólk vill vita meira um staðina þá er hægt að smella á nafnið á þeim.

Dagur 1, Fimmtudagur.
Við fórum í Notre Dame kirkjuna og löbbuðum þar uppá topp (fjúff, engar lyftur þar bara litlar tröppur). Löbbuðum svo yfir Signu og skoðuðum Pantéon, sem er glæsilegt kirkja með grafhýsi undir þar sem margir frægustu menn og konur Frakklands eru grafin eins og Marie Curie, Volitare, Viktor Hugo, Rousseou, Marat og Émile Zola meðal annara. Síðan löbbuðum við niður í alveg ofsalega fallega garða, luxemborgargarðana, þar sem eru stólar fyrir alla og þar var fullt af fólki að njóta veðursins. Þá var þreytan farin að segja til sín, enda höfðum við ekki sofið neitt, þannig að við fórum tilbaka á hótelið og fórum snemma að sofa.

Dagur 2 Föstudagur.
Vöknuðum snemma og fórum í museum de Orsay sem er gömul lestarstöð sem var síðan breytt í safn og við eyddum hálfum deginum þar. Þvínæst fórum við að skoða Invalides, þar sem Napoleon er grafinn, Fórum svo yfir Point Alexander brúnna með sínum gylltu englum og niður á Champs-Élysée sem er aðalgatan í París með öllum flottustu búðunum. Við stóðumst auðvitað ekki freistinguna og fórum inní Louis Vuitton búðina en keyptum nú samt ekkert þar. Því næst röltum við upp að Sigurboganum en ákváðum að fara ekki uppí hann. Síðan tókum við metró að Effelturninum þar sem við tókum myndir og fórum svo uppí topp á turninn. Svo fengum settumst við niður á veitingahúsi í nágrenninu og fengum okkur að borða, en þegar við komum tilbaka þá var búið að kveikja á turninum og hann glitraði allur eins og sést hérna á myndinni. Þvínæst fórum við í kvöldsiglingu á Signu, sem var alveg mögnuð upplifun en þurftum síðan að hlaupa til að ná seinasta metró heim. S
kriðum síðan heim í rúmið, enda alveg uppgefnar eftir daginn.

Dagur 3 Laugardagur.
Vöknuðum aftur snemma og fórum í Monmarte hverfið þar sem Rauða Myllan er staðsett. Þar skoðuðum við kirkju sem ég hafði alltaf haldið að væri öskubuskuhöll, Sacré Cæur, var soldið svekkt yfir því að þetta væri bara kirkja. Svo löbbuðum við um hverfið, sem er listamana hverfi með fullt af túristabúðum, þar sem við keyptum hitt og þetta, ég keypti nú samt aðalega þetta. Þvínæst lá leiðin í risastóran kikjugarð í nágrenninu, Pére Lachaise, og sáum grafir m.a. Oscars Wilde, Edith Piaf, Jims Morrison, Mariu Callas og Söru Bernhard
Ætlunin var að fara síðan í Versali en klukkan var orðin svo margt að við ákváðum að kíkja frekar í Gallerie Lafayette þar sem hægt er að versla allt sem dýrt er milli himins og jarðar, þ.e. ef maður á nóga peninga. Við létum okkur duga að skoða og fengum okkur að borða líka á efstu hæðinni. Svo var haldið heim, ætlunin var að kíkja á næturlífið en þegar heim var komið þá vorum við svona ansi þreyttar að við keyptum okkur bara snakk, súkkulaði og rauðvín og settumst í hótelgarðinn og nutum veðurblíðunnar.

Dagur 4 Sunnudagur.
Fórum snemma af stað til að taka myndir fyrir framan Louvre safnið en höfðum ekki tíma til að skoða það að innan í þetta skiptið. Svo tókum við lest til Versala og eyddum megninu af deginum þar, enda mikið að skoða og yndislegt að rölta um garðana. Það var reyndar yndislegt þangað til að það skall á stormur með þrumum og eldingum, en slíkt hef ég aldrei séð áður, það rigndi svo svakalega að það hlupu allir í skjól og það þurfti að hjálpa eldra fólki í skjól á meðan stálhliðin sem loka garðinum fuku á hliðina. Ég varð rennandi blaut rétt á meðan ég hljóp í skjól, en það þornaði reyndar fljótt því þetta gekk fljótt yfir og eftir stormin skein sólin eins og ekkert hefði í skorið. Eftir að við komum frá Versölum þá fór helmingurinn af hópnum heim til London, en við vorum tvær eftir og ákváðum að fara aftur í lúxemborgargarðana til að borða ís og slaka á. Síðan kíktum við aðeins á pöbb og fengum okkur rauðvínsglas.

Dagur 5 Mánudagur.
Fórum og skoðuðum Pompidue (reyndar bara að utan) og komumst að því að flamenco búðin sem mig langaði að fara í er lokuð á mánudögum (fnuss, hver lokar á mánudögum, o jæja þeirra missir) Svo fórum við í miðbæinn og röltum á milli búða, keyptum lítið en langaði í mikið. Ég held reyndar að okkur hafi langað í svo mikið að það var ómögulegt að kaupa eitthvað, ef það er hægt. Svo kíktum við í ilmvatnssafn og komumst að því hvernig ilmvötn eru búin til. Þá var bara að fara heim á hótel og koma sér af stað aftur til Edinborgar.

Ég setti myndir annarstaðar á netið, enda er myndaalbúmið hérna algjört drasl, en þetta eru bara myndir úr símanum mínum, ég bæti við fleiri myndum þegar ég fæ þær. 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.05.2007 22:36:26 / hronnk

stóra helgin

Nú er stór helgi framundan, fer til Parísar á fimmtudagsmorgun og kem ekki aftur fyrr en á mánudagskvöld þannig að ég verð ekkert á msn eða skype á meðan, en lofa að skrifa eitthvað skemmtilegt þegar ég kem aftur og skella einhverjum Parísarmyndum hérna inn líka. Planið er að skoða alla París á fimm dögum og sitja á kaffihúsum, sötra rauðvín, borða osta og gera allt sem maður á að gera. Við verðum örugglega uppgefnar þegar við komum heim aftur ;).

Góðar fréttir hrannast upp hérna, börn, námsflutningar og ég læt mér hlakka til  að fá bæði Þóreyju og Fífu í heimsókn í júní :).

En þangað til ég kem aftur þá ætla ég að leyfa ykkur að sjá hvað ég hef fyrir augunum alla daga og sé þegar ég loka augunum á kvöldin. Ég er hrædd um að þessar stærri myndir sjáist illa ef þið eruð með gamlan browser en ég kann bara ekki að laga það, endilega látið mig vita ef þið vitið hvernig maður gerir það.


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.05.2007 18:01:26 / hronnk

Velkomin í heiminn

Velkomin í heiminn litla prinsessa Halldórsdóttir :) Til hamingju með hana nýbökuðu foreldrar.


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.05.2007 10:57:38 / hronnk

Það var svo gaman í gær :)

Fór á Beltaine festival í gær, þar sem sumrinu er fagnað að gömlum sið með marglitu fólki, erfitt að lýsa þessu en hérna eru nokkrar myndir, reyndar ekki teknar af mér, símamyndavélin var ekki alveg nógu góð í myrkrinu.


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.04.2007 09:08:11 / hronnk

trén í blóma

Ég hef ekki áður séð svona mikið af trjám í blóma eins og núna :) reyni að ná betri mynd næst.


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Fjölskylda
aðrar pæjur